Skilmálar Breiðmar.is
Með því að heimsækja breidmar.is og/eða eiga viðskipti í gegnum síðuna, hvort sem er nú eða síðar, samþykkir þú eftirfarandi skilmála.
Tengiliður
Spurningar varðandi skilmála, áskriftir eða greiðslur má senda á heidmar@breidmar.is.
Pantanir og verðlagning
breidmar.is getur hafnað eða afturkallað pöntun, til dæmis ef upp koma villur í verðupplýsingum eða tæknileg mistök á síðunni. Fyrirtækið áskilur sér einnig rétt til að breyta verði eða hætta að bjóða tiltekna vöru eða þjónustu án fyrirvara. Hækki verð á mánaðarlegri áskrift verður leitast við að tilkynna áskrifendum áður en breytingin tekur gildi, og hún gildir þá frá og með næstu endurnýjun.
Höfundaréttur
Allt efni sem birt er á breidmar.is — þar með talið æfingaprógrömm, námskeið og annað stafrænt efni — er eign seljanda og nýtur höfundaréttarverndar. Afritun, endurbirting, dreifing eða endursala efnisins, í heild eða að hluta, er óheimil.
Persónulegur aðgangur
Aðgangur að áskriftum og stafrænu efni er ætlaður þeim einstaklingi sem keypti hann. Öðrum er óheimilt að nota eða deila aðgangi án greiðslu.
Greiðslufyrirkomulag
Mánaðarlegar áskriftir: Skráning í áskrift felur í sér skuldbindingu til reglulegrar greiðslu á 30 daga fresti.
Stakar vörur: Greitt er fyrirfram fyrir stök námskeið eða vörur. Þegar um stafrænt efni er að ræða er endurgreiðsla almennt ekki í boði eftir að greiðsla hefur farið fram og aðgangur verið veittur.
Endurgreiðslur: Þar sem greitt er fyrirfram myndast ekki endurgreiðsluréttur eftir að gjald hefur verið innheimt — óháð því hvort þjónustan er nýtt eða ekki.
Uppsögn: Áskrift verður almennt ekki sagt upp nema í undantekningartilvikum vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Í slíkum tilfellum skal haft samband og málið metið sérstaklega.
Riftun af hálfu seljanda: breidmar.is getur sagt upp áskrift án endurgreiðslu ef samstarf gengur illa eða ef skilmálar eru brotnir, til dæmis með óheimilli deilingu aðgangs.
Ábyrgð þátttakanda
Þátttakandi ber sjálfur ábyrgð á framkvæmd æfinga og ráðlegginga sem veittar eru, sem og á eigin heilsu. Árangur getur verið einstaklingsbundinn, og mælt er með að hlusta á eigin líkama. Sé um að ræða meiðsli, veikindi eða önnur heilsufarsleg atriði, skal leita ráðgjafar sérfræðings áður en þjónusta er keypt eða æfingar hafnar. Með kaupum staðfestir þátttakandi að hann noti þjónustuna á eigin ábyrgð.
Trúnaður
Upplýsingar sem viðskiptavinur veitir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og verða ekki afhentar þriðja aðila, nema lög krefjist annars.
Lög og varnarþing
Skilmálarnir lúta íslenskum lögum, og ágreiningsmál skulu rekin fyrir íslenskum dómstólum.
Breytingar
breidmar.is áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum. Breytingar taka gildi um leið og uppfærð útgáfa hefur verið birt á síðunni.