Fjarþjálfun · Einkaþjálfun

Byggjum upp góðar venjur og komum þér á þann stað sem þú vilt.

Ég er Heiðmar Snær og ég hjálpa fólki að ná markmiðum sínum — hvort sem það er fjarþjálfun eða einkaþjálfun með mér í eigin persónu. Skýr prógrömm, raunverulegt utanumhald. Ég segi þér hvað þú átt að gera og það eina sem þú þarft að gera er að fylgja því.

1:1
Persónulegt utanumhald
Fjarþjálfun
Æfðu hvar og hvenær sem er
100%
Sniðið að þér
Heiðmar Snær Borgarsson

Þjálfari sem mætir þér þar sem þú ert.

Ég heiti Heiðmar Snær Borgarsson, er 28 ára faðir og á einn lítinn strák og þrjá hunda. Ég bý á Þorlákshöfn en er mikið á höfuðborgarsvæðinu. Síðustu 6 ár hef ég unnið í búsetuúrræði fyrir ungmenni með margþættan vanda og er auk þess slökkviliðsmaður í Árnessýslu. Ég hef stundað líkamsrækt af miklum krafti í 10 ár og útskrifaðist sem einkaþjálfari árið 2020. Markmiðið var lengi vel að verða sem massaðastur, en fyrir tveimur árum áttaði ég mig á að ég vildi bara vera eins og ég er — heilsuhraustur og í góðu formi allan ársins hring.

Hvort sem þú ert að taka fyrstu skrefin eða vilt komast á næsta stig, byggi ég prógrömm sem taka mið af þínum aðstæðum, tíma og markmiðum. Fyrir mér á heilsan alltaf að vera í fyrirrúmi — og ég trúi því að það sé alltaf hægt að skapa sér tíma fyrir sjálfan sig, sama hve dagarnir eru þéttskipaðir.

Persónuleg prógrömm
Stöðugt utanumhald
Sveigjanleg tímasetning

Veldu þá leið sem hentar þér.

Tvær leiðir að sama markmiði — sterkari og heilbrigðari útgáfa af þér.

FJARÞJÁLFUN

Þjálfun hvar sem þú ert

Sérsniðið æfingaprógramm, vikulegt stöðumat og bein samskipti — allt fjarstýrt svo þú getir æft á þínum forsendum, hvar og hvenær sem hentar.

  • Sérsniðið æfingaprógramm
  • Vikulegt stöðumat
  • 24/7 aðgangur að mér
  • Aðlagað eftir árangri
Sækja um fjarþjálfun
EINKAÞJÁLFUN

Þjálfun með mér í eigin persónu

Fullkomin athygli í hverjum tíma. Ég fylgi þér í gegnum hverja æfingu, leiðrétti tækni og held þér við efnið þegar þú þarft það mest.

  • 1:1 tímar með fullri athygli
  • Tækniyfirferð og leiðréttingar
  • Sveigjanleg tímasetning
  • Sniðið að þínu getustigi
Bóka einkaþjálfun

Fyrstu skrefin að nýjum og betri lífsstíl.

01

Skráning

Við tökum spjall um stöðuna þína, markmið og hvað hentar þér best.

02

Áætlun

Ég set saman prógramm sem er sniðið að þínum aðstæðum og getustigi.

03

Framkvæmd

Þú byrjar. Árangurinn fellst í vinnunni sem þú leggur inn.

04

Eftirfylgni

Ég fylgist með árangri og aðlaga áætlunina eftir þínum árangri og vinnu.

Alvöru árangur hjá alvöru fólki.

Hér eru dæmi um frábæran árangur hjá fólki sem hefur verið í þjálfun hjá Breiðmari.

Kúnni 1 fyrirFyrir
Kúnni 1 eftirEftir
Kúnni 1 fyrirFyrir
Kúnni 1 eftirEftir
Kúnni 2 fyrirFyrir
Kúnni 2 eftirEftir
Kúnni 2 fyrirFyrir
Kúnni 2 eftirEftir

„Þetta snýst ekki um skyndilausnir — heldur að fylgja plani, byggja upp vana sem endist, og árangurinn talar fyrir sig.“

Algengar spurningar.

Þú færð sérsniðið æfingaprógramm og vikulegt stöðumat frá mér. Við höldum sambandi milli tíma svo ég geti aðlagað prógrammið eftir því sem þú tekur framförum.

Já, prógrömmin eru sniðin að þínu núverandi getustigi — hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin eða æfir reglulega nú þegar.

Staðsetning og tímasetning er ákveðin í samráði við þig þegar við tökum fyrsta samtalið.

Smelltu á „Skrá mig“ hnappinn hér að neðan — það fer með þig í skráningarform þar sem þú velur pakka og skráir þig, eða sendu mér línu á heidmar@breidmar.is ef þú vilt spjalla fyrst.

Byrjum þína vegferð.

Skráðu þig beint hér á síðunni — veldu pakka og fylltu út formið. Viltu spjalla fyrst? Sendu mér línu.

Settu inn rétta samfélagsmiðlatengla

Tilbúin/n að byrja?

Skoðaðu pakkana mína og skráðu þig beint — tekur bara nokkrar mínútur.

Skrá mig →